Klettagarðar 7

Verknúmer : BN056663

1036. fundur 2019
Klettagarðar 7, Lóðaruppdráttur
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans í Reykjavík á nýju mæliblaði fyrir lóðina nr. 7 við Klettagarða, mæliblaðið er í samræmi við deiliskipulag. Byggingarreitur færist um 10 metra frá götu og er minnkaður. Aðkomu að lóðum nr. 7 og nr. 7a er breytt. Stærð lóðar er óbreytt.
Óskað er eftir samþykkt á mæliblaði og hæðarblaði.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.