Sætún

Verknúmer : BN056648

1036. fundur 2019
Sætún, Lóðaruppdráttur - svæði A
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta lóðamörkum lóðanna Sætúns A og B á Kjalarnesi í samræmi við meðfylgjandi uppdrætti sem eru dagsettir 03.09.2019.
Lóðin Sætún, svæði A (staðgr. 33.625.301, L213923) er 3125 m².
Teknir 1972 m² af lóðinni og bætt við Sætún, svæði B (staðgr. 33.625.302, L213924).
Bætt 2846 m² við lóðina frá Sætúni, svæði B (staðgr. 33.625.302, L213924).
Lóðin Sætún, svæði A (staðgr. 33.625.301, L213923) verður 3999 m².
Lóðin Sætún, svæði B (staðgr. 33.625.302, L213924) er 7160 m².
Teknir 2846 m² af lóðinni og bætt við Sætún, svæði A (staðgr. 33.625.301, L213923).
Bætt 1972 m² við lóðina frá Sætúni, svæði A (staðgr. 33.625.301, L213923).
Lóðin Sætún, svæði B (staðgr. 33.625.302, L213924) verður 6286 m².
Sjá deiliskipulag sem samþykkt var í skipulags- og samgönguráði þann 20.03.2019 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 17.04.2019.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.