Súðarvogur 2

Verknúmer : BN056586

1040. fundur 2019
Súðarvogur 2, Fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja 3-4 hæða steinsteypt fjölbýlishús ásamt kjallara með 62 íbúðum og atvinnueignum í samræmi við deiliskipulag og 57 bílastæðum í kjallara á lóð nr. 2 við Súðarvog.
Erindi fylgir ódagsett óundirrituð greinargerð hönnuðar, lóðauppdráttur 1.452.1 dags. 31. ágúst 2017, hæðablað nr. 17181 dags. 2. nóvember 2017, yfirlit yfir mörk hljóðvistar, mynd: Kort 1 í kafla 3.1.13 i greinargerð deiliskipulags dags. 2. febrúar 2017.
Stærðir:
A-rými: 6.145.1 ferm., 19.112.9 rúmm.
B-rými: 242.5 ferm.
Samtals: A- og B-rými: 7.397.9 ferm., 24.073.1 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1037. fundur 2019
Súðarvogur 2, Fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja 3-4 hæða steinsteypt fjölbýlishús ásamt kjallara með 62 íbúðum og atvinnueignum í samræmi við deiliskipulag og 57 bílastæðum í kjallara á lóð nr. 2 við Súðarvog.
Erindi fylgir ódagsett óundirrituð greinargerð hönnuðar, lóðauppdráttur 1.452.1 dags. 31. ágúst 2017, hæðablað nr. 17181 dags. 2. nóvember 2017 Yfirlit yfir mörk hljóðvistar, mynd: Kort 1 í kafla 3.1.13 i greinargerð deiliskipulags dags. 2. febrúar 2017.
Stærðir:
A-rými: xx.x ferm., xx.x rúmm.
B-rými: xx.x ferm., xx.x rúmm.
Samtals: A- og B-rými: xx.x ferm., xx.x rúmm.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.