Lofnarbrunnur 16

Verknúmer : BN056560

1042. fundur 2019
Lofnarbrunnur 16, Breytingar inni og úti.
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á BN049530 vegna lokaúttektar þannig að innanhúss eru lítilsháttar breytingar en utanhúss er staðsetningu útitrappa breytt og sólpalli bætt við á lóð nr. 16 við Lofnarbrunn.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa á teikningu með breytingardagsetningu 17. júlí 2019.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

1040. fundur 2019
Lofnarbrunnur 16, Breytingar inni og úti.
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á BN049530 vegna lokaúttektar þannig að innanhúss eru lítilsháttar breytingar en utanhúss er staðsetningu útitrappa breytt og sólpalli bætt við á lóð nr. 16 við Lofnarbrunn.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.

1034. fundur 2019