Blesugróf 12

Verknúmer : BN056547

1036. fundur 2019
Blesugróf 12, Parhús
Sótt er um leyfi til þess að byggja parhús á einni hæð á lóð nr. 12 við Blesugróf.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. september 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. september 2019.
Stærð: 263,4 ferm., 906.8 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


742. fundur 2019
Blesugróf 12, Parhús
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. ágúst 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. ágúst 2019 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja parhús á einni hæð á lóð nr. 12 við Blesugróf. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. september 2019.
Stærð: 263,4 ferm., 906.8 rúmm. Gjald kr. 11.200


Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. september 2019, samþykkt.

741. fundur 2019
Blesugróf 12, Parhús
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. ágúst 2019 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja parhús á einni hæð á lóð nr. 12 við Blesugróf.
Stærð: 263,4 ferm., 906.8 rúmm. Gjald kr. 11.200


Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

1034. fundur 2019
Blesugróf 12, Parhús
Sótt er um leyfi til þess að byggja parhús á einni hæð á lóð nr. 12 við Blesugróf.
Stærð: 263,4 ferm., 906.8 rúmm.
Gjald kr. 11.200


Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.