Fjölnisvegur 11

Verknúmer : BN056538

1034. fundur 2019
Fjölnisvegur 11, Breytingar - BN055193
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055193 þannig að þakklæðning verður úr steinskífum í stað læstrar málmklæðningar, þak bílskúrs verður endursteypt og byggt verður skýli á bakhlið einbýlishúss á lóð nr. 11 við Fjölnisveg.
Stærðir B-rými: xxx ferm., xxx rúmm.
Jafnframt eru erindi BN056415 og BN056310 dregin til baka
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 1. ágúst 2019.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.