Efstaleiti 11

Verknúmer : BN056476

1031. fundur 2019
Efstaleiti 11, Lágaleiti 13-15 mhl.02 - Lagfæring á stærðum
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054502 þannig að merkingar og stærðir eru uppfærðar á 1., 2., 3. og 4. hæð í fjölbýlishúsi sem er mhl. 02 á lóð nr. 11 við Efstaleiti.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1030. fundur 2019
Efstaleiti 11, Lágaleiti 13-15 mhl.02 - Lagfæring á stærðum
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054502 þannig að merkingar og stærðir eru uppfærðar á 1., 2., 3. og 4. hæð í fjölbýlishúsi sem er mhl. 02 á lóð nr. 11 við Efstaleiti.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.