Skúlagata 26

Verknúmer : BN056474

1031. fundur 2019
Skúlagata 26, Uppsteypa kjallara / bílakjallari - stoðrými - aksturleið/aðkomu
Sótt er um leyfi til að steypa upp þrjár kjallarahæðir sem hýsa munu bílgeymslu fyrir 52 bíla ásamt stoðrýmum og anddyri hótels og verður fyrsti áfangi í uppbyggingu á lóð nr. 26 við Skúlagötu.
Erindi fylgir bréf umsækjanda dags. 23. júlí 2019.
Stærð: 4.081,7 ferm., 15.346,3 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Erindið er samþykkt með fyrirvara um endanlega hönnun hinnar 17 hæða hótelbyggingar sem fyrirhugað er að reisa á lóðinni, s.s. brunahönnun, algilda hönnun og fyrirkomulag í bílakjallara, sem þarf að endurskoða.