Bíldshöfði 16

Verknúmer : BN056471

1031. fundur 2019
Bíldshöfði 16, Fjölga eignum
Sótt er um leyfi til að fjölga eignum í mlh. 02 um tvær eignir, eina á 3. hæð og eina á 4. hæð húss á lóð nr. 16 við Bíldshöfða.
(Erindi fylgir minnkað afrit af teikningu 1. hæðar samþ. 8. desember 1999 og tp. frá verkefnastjóra Ríkiskaupa með opnu, óundirrituðu word skjali af fundargerð aðalfundar Bíldshöfða 16 í viðhengi, dags. 23. apríl 2019.
Einnig fylgir bréf hönnuðar dags. 26. júlí 2019 og fundargerð dags. 23. apríl 2019.
Gjald kr. 11.200)

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að
samþykktin öðlist gildi.