Laugavegur 95-99

Verknúmer : BN056465

1030. fundur 2019
Laugavegur 95-99, Reyndarteikningar v/lokaúttektar
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á BN051774 vegna lokaúttektar á húsi á lóð nr. 95 - 99 við Laugaveg.
Erindi fylgir umboð dags. 28. janúar 2016, lóðablað dags. 26. janúar 2007, greinagerð hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið hönnuða dags. 3. október 2016 og yfirlit yfir breytingar afmarkað á útprentun í A4 af teikningum hönnuða. Einnig fylgir bréf Eflu dags. 17. júlí 2019 og bréf hönnuða um yfirlit yfir breytingar dags. 9. júlí 2019.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.