Kaplaskjólsvegur 27-35

Verknúmer : BN056464

1042. fundur 2019
Kaplaskjólsvegur 27-35, 35 - Áður gerður sólskáli - svalir
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum sólskála og leyfi til að útbúa svalir ofan á þak skálans sem stendur við suðurhlið mhl. 06, raðhúss nr. 33, 33A og 35 á lóð nr. 27-35 við Kaplaskjólsveg.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda raðhúsa nr. 33 og 33A dags. 27. júní 2019. Við erindi er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. maí 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. október 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. október 2019.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Kaplaskjólsvegi 27, 29, 31, 33, 33a og 37-43 frá 13. september 2019 til og með 11. október 2019. Eftirtaldir sendu inn athugasemdir: Ingunn Björk Jónsdóttir dags. 6. október 2019.
Stærðir: 10,0 ferm., 27,0 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrðaraðilar. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


748. fundur 2019
Kaplaskjólsvegur 27-35, 35 - Áður gerður sólskáli - svalir
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. ágúst 2019 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum sólskála og leyfi til þess að útbúa svalir ofan á þak skálans sem stendur við suðurhlið mhl. 06, raðhúss nr. 35 á lóð nr. 27-35 við Kaplaskjólsveg. Erindi var grenndarkynnt frá 13. september 2019 til og með 11. október 2019. Eftirtaldir sendu inn athugasemdir: Ingunn Björk Jónsdóttir dags. 6. október 2019. Erindinu var vísað til vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. október 2019 og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. október 2019.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda raðhúss nr. 33 og 33A dags. 27. júní 2019. Gjald kr. 11.200

Umsögn dags. 25. október 2019, samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


747. fundur 2019
Kaplaskjólsvegur 27-35, 35 - Áður gerður sólskáli - svalir
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. ágúst 2019 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum sólskála og leyfi til þess að útbúa svalir ofan á þak skálans sem stendur við suðurhlið mhl. 06, raðhúss nr. 35 á lóð nr. 27-35 við Kaplaskjólsveg. Erindi var grenndarkynnt frá 13. september 2019 til og með 11. október 2019. Eftirtaldir sendu inn athugasemdir: Ingunn Björk Jónsdóttir dags. 6. október 2019.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda raðhúss nr. 33 og 33A dags. 27. júní 2019. Gjald kr. 11.200

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

1033. fundur 2019
Kaplaskjólsvegur 27-35, 35 - Áður gerður sólskáli - svalir
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum sólskála og leyfi til að útbúa svalir ofan á þak skálans sem stendur við suðurhlið mhl. 06, raðhúss nr. 33, 33A og 35 á lóð nr. 27-35 við Kaplaskjólsveg.
Stærðir: 10,0 ferm., 27,0 rúmm.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda raðhúsa nr. 33 og 33A dags. 27. júní 2019. Við erindi er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. maí 2019.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað til uppdrátta 01-01, 01-02, 01-03, 01-04, 01-05, dags. 9. júlí 2019.


740. fundur 2019
Kaplaskjólsvegur 27-35, 35 - Áður gerður sólskáli - svalir
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. ágúst 2019 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum sólskála og leyfi til þess að útbúa svalir ofan á þak skálans sem stendur við suðurhlið mhl. 06, raðhúss nr. 35 á lóð nr. 27-35 við Kaplaskjólsveg.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda raðhúss nr. 33 og 33A dags. 27. júní 2019. Gjald kr. 11.200

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Kaplaskjólsvegi 27, 29, 31, 33, 33a og 37-43.

Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.


1030. fundur 2019
Kaplaskjólsvegur 27-35, 35 - Áður gerður sólskáli - svalir
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum sólskála og leyfi til þess að útbúa svalir ofan á þak skálans sem stendur við suðurhlið mhl. 06, raðhúss nr. 35 á lóð nr. 27-35 við Kaplaskjólsveg.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda raðhúss nr. 33 og 33A dags. 27. júni 2019.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.