Sturlugata 8

Verknúmer : BN056440

1031. fundur 2019
Sturlugata 8, Stækkun á útisvæði - grindverk
Sótt er um leyfi til að stækka útisvæði og girða með 4 m hárri girðingu, koma þar fyrir sjö færanlegum gáma(hús)einingum með uppsettum tölvubúnaði og fjölga kælitækjum á lóð nr. 8 við Sturlugötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. júlí 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. júlí 2019
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. júlí 2019.


737. fundur 2019
Sturlugata 8, Stækkun á útisvæði - grindverk
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. júlí 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. júlí 2019 þar sem sótt er um leyfi til þess að stækka útisvæði og girða af með 4 m hárri girðingu, koma þar fyrir sjö færanlegum gáma(hús)einingum með uppsettum tölvubúnaði og fjölga kælitækjum á lóð nr. 8 við Sturlugötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. júlí 2019.
Gjald kr. 11.200

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. júlí 2019.

736. fundur 2019
Sturlugata 8, Stækkun á útisvæði - grindverk
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. júlí 2019 þar sem sótt er um leyfi til þess að stækka útisvæði og girða af með 4 m hárri girðingu, koma þar fyrir sjö færanlegum gáma(hús)einingum með uppsettum tölvubúnaði og fjölga kælitækjum á lóð nr. 8 við Sturlugötu.
Gjald kr. 11.200

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

1028. fundur 2019
Sturlugata 8, Stækkun á útisvæði - grindverk
Sótt er um leyfi til þess að stækka útisvæði og girða af með 4 m hárri girðingu, koma þar fyrir sjö færanlegum gáma(hús)einingum með uppsettum tölvubúnaði og fjölga kælitækjum á lóð nr. 8 við Sturlugötu.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.