Fossvogskirkja

Verknúmer : BN056404

1031. fundur 2019
Fossvogskirkja, Vesturhlíð 2 - Breyting á glugga - kjallarahurð
Sótt er um leyfi til að stækka glugga og bæta við opnanlegu fagi á norðurhlið fyrstu hæðar ásamt því að síkka kjallaraglugga og gera nýjan inngang að kjallara á vesturhlið hússins Vesturhlíð 2 við Fossvogskirkju.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 26. júni 2019 og umsögn burðarþolshönnuðar dags. 24. júli 2019.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1027. fundur 2019
Fossvogskirkja, Vesturhlíð 2 - Breyting á glugga - kjallarahurð
Sótt er um leyfi til þess að stækka glugga og bæta við opnanlegu fagi á norðurhlið fyrstu hæðar ásamt því að síkka kjallaraglugga og gera nýjan inngang að kjallara á vesturhlið hússins Vesturhlíð 2 við Fossvogskirkju.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 26. júni 2019.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.