Úlfarsbraut 122-124

Verknúmer : BN056307

1026. fundur 2019
Úlfarsbraut 122-124, Færanlegar stofur
Sótt er um leyfi til að flytja húseignir Íþróttafélagsins Fram, sem staðsettar eru norðanmegin við fyrirhugaðan keppnisvöll, á lóð nr. 126, á byggingarreit fyrir færanlegar kennslustofur austan við nýbyggingu grunnskólans, til notkunar þar til nýbygging íþróttafélagsins verður fullbyggð á lóð nr. 122 við Úlfarsbraut.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 18. júní 2019 þar sem fram kemur beiðni um flutning húss á milli lóða og beiðni um að falla frá erindi BN054650
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1024. fundur 2019
Úlfarsbraut 122-124, Færanlegar stofur
Sótt er um leyfi til að flytja húseignir Íþróttafélagsins Fram, sem staðsettar eru norðanmegin við fyrirhugaðan keppnisvöll, á byggingarreit fyrir færanlegar kennslustofur austan við nýbyggingu grunnskólans, til notkunar þar til nýbygging íþróttafélagsins verður fullbyggð á lóð nr. 122 við Úlfarsbraut.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda.