Lyngháls 4

Verknúmer : BN056248

1022. fundur 2019
Lyngháls 4, Aðstaða fyrir reiðhjól bílakjallara
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN053059 þannig að texta í brunalýsingu er breytt og komið verður fyrir aðstöðu fyrir reiðhjól á efri palli, 0129, í bílakjallara í húsi á lóð nr. 4 við Lyngháls.
Skýrsla brunahönnuðar dags. 7. maí 2019 fylgir erindi.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.