Laugavegur 4

Verknúmer : BN056236

1022. fundur 2019
Laugavegur 4, Smá breyting v/ lokaúttektar
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN049191 þannig að flóttahurð í kjallara er snúið, samskiptabúnaður á öruggu svæði á 2. hæð er fjarlægður og texti í byggingarlýsingu um brunavarnir er uppfærður v/lokaúttektar á húsi á lóð nr. 4 við Laugaveg.
Gjald kr. 11.200
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Þinglýsa skal yfirlýsingu um að eignarhald sé ávallt á einni hendi á öllum matshlutum fyrir útgáfu byggingarleyfis.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.