Lækjargata 12

Verknúmer : BN056223

1023. fundur 2019
Lækjargata 12, Breytingar á eign
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054237 þannig að í mhl. 01 verður innréttuð heilsurækt í kjallara og eldhús fært uppá 1. hæð ásamt lítils háttar breytingum á innra skipulagi vegna fornminja og lagnastokka og á mhl. 02 verður mænir hækkaður, byggðir kvistir og innréttuð fjögur ný hótelherbergi þannig að samtals verða 122 herbergi í hóteli á lóð nr. 12 við Lækjargötu.
Breyttar stærðir:
Mhl. 01: 7,1 ferm., 482,9 rúmm.
Eftir breytingu: 6.604,8 ferm., 23.018,3 rúmm.
Mhl. 02: -58 ferm., 268,7 rúmm.
Eftir breytingu: 897,2 ferm., 2.918,1 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


1021. fundur 2019
Lækjargata 12, Breytingar á eign
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054237 þannig að í mhl. 01 verður innréttuð heilsurækt í kjallara og eldhús fært uppá 1. hæð ásamt lítils háttar breytingum á innra skipulagi vegna fornminja og lagnastokka og á mhl. 02 verður mænir hækkaður, byggðir kvistir og innréttuð fjögur ný hótelherbergi í hóteli á lóð nr. 12 við Lækjargötu.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Eftir stækkun samtals: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda.