Birkimelur 3

Verknúmer : BN056221

1042. fundur 2019
Birkimelur 3, Breyting inni - breyting á bílastæðum.
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN048489 þannig að fyrirkomulag á lóð er fært til samræmis við breytt deiliskipulag á lóð nr. 3 við Birkimel.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1021. fundur 2019
Birkimelur 3, Breyting inni - breyting á bílastæðum.
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN048489 þannig að fyrirkomulag á lóð er fært til samræmis við breytt deiliskipulag á lóð nr. 3 við Birkimel.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda.