Nýlendugata 34

Verknúmer : BN056151

1022. fundur 2019
Nýlendugata 34, Fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055571 þannig að íbúðir efstu hæða stækka, gluggar og hurðir breytast sem og þykktir veggja og gólfa ásamt því að gert verður ráð fyrir vatnsúðakerfi í fjölbýlishúsi á lóð nr. 34 við Nýlendugötu.
Erindi fylgir hljóðvistargreinargerð frá EFLU dags. 30. apríl 2019.
Stækkun: 10,1 ferm., 22,4 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1020. fundur 2019
Nýlendugata 34, Fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055571 fjölbýlishúsi á lóð nr. 34 við Nýlendugötu.
Erindi fylgir hljóðvistargreinargerð frá EFLU dags. 30. apríl 2019.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.