Lambhagavegur 19

Verknúmer : BN056149

1019. fundur 2019
Lambhagavegur 19, Breytingar inni sbr. BN051044
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051044 þannig að breytt er innra skipulagi pökkunarrýmis, fyrirkomulagi í þvotta/ræstirými og felldar niður tvennar dyr á austurhlið húss á lóð nr. 19 við Lambhagaveg.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 9. júní 2016 varðandi gróður, ljósmengun og hljóð.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.