Sléttuvegur 25-27

Verknúmer : BN056095

1018. fundur 2019
Sléttuvegur 25-27, Breyting á skráningu leiguíbúða -BN054467
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054467 þannig að skráningu og eignarhaldi leiguíbúða er breytt í húsi á lóð nr. 25 - 27 við Sléttuveg.
Erindi fylgir tölvupóstur frá höfundi skráningartöflu dags. 24. apríl 2019.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Þinglýsa skal yfirlýsingu um að eignarhald verði ávallt á einni hendi fyrir útgáfu byggingarleyfis.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


1017. fundur 2019
Sléttuvegur 25-27, Breyting á skráningu leiguíbúða -BN054467
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054467 þannig að skráningu og eignarhaldi leiguíbúða er breytt í húsi á lóð nr. 25 - 27 við Sléttuveg.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.