Grundarstígur 5A

Verknúmer : BN056027

1018. fundur 2019
Grundarstígur 5A, Viðbygging, kvistir, uppbygging aldamótahúss
Sótt er um leyfi til þess að endurbyggja í sem næst sinni upphaflegu mynd, hús byggt árið 1890, og byggja við suðurgafl þess 2ja hæða viðbyggingu og stækka kvist til austurs á lóð nr. 5A við Grundarstíg.
Stækkun: 21,8 ferm,. 50,9 rúmm.
Erindi fylgir greinargerð unnin af Eflu um val og hönnun brunavarna dags. 30. mars 2019 og umsögn Minjastofnunar dags. 17. apríl 2019.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1016. fundur 2019
Grundarstígur 5A, Viðbygging, kvistir, uppbygging aldamótahúss
Sótt er um leyfi til þess að endurbyggja í sem næst sinni upphaflegu mynd hús byggt árið 1890 og byggja við suðurgafl þess 2ja hæða viðbyggingu og stækka kvist til austurs.
Stækkun: 21,8 fermm,. 50,9 rúmm.
Erindi fylgir greinargerð unnin af Eflu um val og hönnun brunavarna dags. 30. mars 2019.
Gjald: kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.