Fákafen 9

Verknúmer : BN055991

1015. fundur 2019
Fákafen 9, Reyndarteikningar BN055384 v/lokaúttektar
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN055384 vegna lokaúttektar og eru breytingar þannig að handlaug á snyrtingu er færð, neyðarlýsing uppfærð, útblástursstokkur fjarlægður og núverandi útblástursrist notuð í staðinn, uppþvotta og matvælavaski er bætt við í eldhúsi í rými 0102 í húsi á lóð nr. 9 við Fákafen.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.