Melbær 31-43

Verknúmer : BN055987

1015. fundur 2019
Melbær 31-43, Klæða austurgafl og hluta suðurhliðar
Sótt er um leyfi til að klæða, með sléttri álklæðningu á undirkerfi, austurgafl og hluta suðurhliðar raðhúss nr. 31-43 við Melbæ.
Erindi fylgir fundargerð fundar húsfélagsins Melbæ 31-43 haldinn 30. janúar 2019 og bréf frá Verkhof ehf dags. 25. mars 2019 um mat á burðarhæfni steypu.
Gjald: 11.200 kr.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.