Gerðarbrunnur 2-10

Verknúmer : BN055975

1020. fundur 2019
Gerðarbrunnur 2-10, Breytingar BN054702- lækkun salarhæða o.fl.
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054702 þannig að salarhæð 1. og 2. hæðar er lækkuð, frágangi á þaki, innra skipulagi íbúða 0101 og 0201 í mhl. 02 og gluggaútlitum er breytt í húsi á lóð nr. 2-10 við Gerðarbrunn.
Minnkun Mhl-01: 0,0 ferm., 106,7 rúmm.
Minnkun Mhl-02: 0,0 ferm., 95,1 rúmm.
samtals stærð eftir breytingu: 1.428,0 ferm., 4.647,0 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1015. fundur 2019
Gerðarbrunnur 2-10, Breytingar BN054702- lækkun salarhæða o.fl.
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054702 þannig að salarhæð 1. og 2. hæðar er lækkuð, frágangi á þaki, innra skipulagi íbúða 0101 og 0201 í mhl. 02 og gluggaútlitum er breytt í húsi á lóð nr. 2-10 við Gerðarbrunn.
Minnkun Mhl-01: 0,0 ferm., 106,7 rúmm.
Minnkun Mhl-02: 0,0 ferm., 95,1 rúmm.
samtals stærð eftir breytingu: 1.428,0 ferm., 4.647,0 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.