Haukahlíð 1

Verknúmer : BN055959

1020. fundur 2019
Haukahlíð 1, Mhl.06 - Breyting BN054708 - á fjölda íbúða - breytingar á stærðum
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054708 þannig að íbúðum er fjölgað úr 35 í 36 og salarhæðum í kjallara og efstu hæð er breytt, einnig er breyting á skráningartöflu matshluta 06 á lóð nr. 1 við Haukahlíð.
Erindi fylgir minnisblað Mannvits um brunahönnun dags. 22. febrúar 2019 og afrit af óstimpluðum teikningum í stærð A3 sem sýna breytingar frá fyrri samþykkt. Einnig fylgir bréf hönnuðar dags. 8. maí 2019 og yfirlit yfir breytingar mótt. 7. maí 2019.
Stækkun:
A-rými: 15,0 ferm, 39,7 rúmm,
B-rými: 4,2 ferm., 3,4 rúmm.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1014. fundur 2019
Haukahlíð 1, Mhl.06 - Breyting BN054708 - á fjölda íbúða - breytingar á stærðum
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054708 þannig að íbúðum er fjölgað úr 35 í 36 og salarhæðum í kjallara og efstu hæð er breytt, einnig er breyting á skráningartöflu matshluta 06 á lóð nr. 1 við Haukahlíð.
Erindi fylgir minnisblað Mannvits um brunahönnun dags. 22. febrúar 2019 og afrit af óstimpluðum teikningum í stærð A3 sem sýna breytingar frá fyrri samþykkt.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.