Hraunteigur 3

Verknúmer : BN055947

1076. fundur 2020
Hraunteigur 3, Breyting á útliti sbr. BN053466
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN053466, þannig að bakhurð er fjarlægð og gluggum breytt á norðurhlið húss á lóð nr. 3 við Hraunteig.
Gjald kr. 11.200


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1074. fundur 2020
Hraunteigur 3, Breyting á útliti sbr. BN053466
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN053466, þannig að bakhurð er fjarlægð, gluggum breytt á norður hlið og svalir stækkaðar á þaki bílskúrs, í húsi á lóð nr. 3 við Hraunteig.
Gjald kr. 11.200


Frestað.
Vísað til athugasemda.


1014. fundur 2019
Hraunteigur 3, Breyting á útliti sbr. BN053466
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN053466 í húsi á lóð nr. 3 við Hraunteig.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.