Engjavegur 6

Verknúmer : BN055913

1016. fundur 2019
Engjavegur 6, Breyting inni - nýir gluggar
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 2. hæðar og bæta við þremur gluggum á suðurhlið og tveimur á vesturhlið húss á lóð nr. 6 við Engjaveg.
Bréf frá hönnuði dags. 12. mars 2019. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 25. mars. 2019 fylgir.
Gjald: kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1013. fundur 2019
Engjavegur 6, Breyting inni - nýir gluggar
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 2. hæðar og bætta við þremur gluggum á suðurhlið og tveimur á vesturhlið hús á lóð nr. 6 við Engjaveg.
Bréf frá hönnuði dags. 12. mars 2019.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.