Kringlan 4-12

Verknúmer : BN055908

1014. fundur 2019
Kringlan 4-12, Breytingar á inngangi G við suð-vesrur enda og fl.
Sótt er um leyfi til að breyta inngangi G, á 3. hæð, við suðvesturenda byggingar þannig að nýtt vindfang með tveimur rennihurðum er sett í stað núverandi inngangs á lóð nr. 4-12 við Kringluna.
Umsögn brunahönnuðar dags. 11. mars 2019 fylgir erindi.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


1013. fundur 2019
Kringlan 4-12, Breytingar á inngangi G við suð-vesrur enda og fl.
Sótt er um leyfi til að breyta inngangi G, á 3. hæð, við suð-vestur enda byggingarinnar þannig að nýtt vindvang með tveimur rennihurðum kemur í stað núverandi inngangs á lóð nr. 4-12 við Kringluna.
Umsögn brunahönnuðar dags. 11. mars 2019 fylgir erindi.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnareftirliti.