Karlagata 9

Verknúmer : BN055808

1013. fundur 2019
Karlagata 9, Ósamþykkt íbúð í kjallara - áður gerðar breytingar - Gögn eru hjá Karó
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi ásamt því að gerð er grein fyrir áður gerðri ósamþykktri íbúð í kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 9 við Karlagötu.
Erindi fylgir virðingargjörð dags. 1. júní 1941, íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 28. febrúar 2019, samþykki meðeigenda árituð á uppdrátt og lögð er fram íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 7. ágúst 2017.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrðaraðilar.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.


1011. fundur 2019
Karlagata 9, Ósamþykkt íbúð í kjallara - áður gerðar breytingar - Gögn eru hjá Karó
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi ásamt því að gerð er grein fyrir áður gerðri íbúð í kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 9 við Karlagötu.
Erindi fylgir virðingargjörð dags. 1. júní 1941, íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 28. febrúar 2019, samþykki meðeigenda árituð á uppdrátt og lögð er fram íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 7. ágúst 2017.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.