Bólstaðarhlíð 15

Verknúmer : BN055803

1016. fundur 2019
Bólstaðarhlíð 15, Breyting á kvisti, gluggabreyting, svalir o.fl.
Sótt er um leyfi til að stækka þakglugga á norðurhlið, breyta kvisti á suðurhlið og útbúa svalir framan við hann á rishæð fjölbýlishúss á lóð nr. 15 við Bólstaðarhlíð.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 8. febrúar 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. apríl 2019 fylgir erindi. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Bólstaðarhlíð 13, 14 og 16 frá 6. mars 2019 til og með 3. apríl 2019. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.



723. fundur 2019
Bólstaðarhlíð 15, Breyting á kvisti, gluggabreyting, svalir o.fl.
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. febrúar 2019 þar sem sótt er um leyfi til að stækka þakglugga á norðurhlið, breyta kvisti á suðurhlið og útbúa svalir framan við hann á rishæð fjölbýlishúss á lóð nr. 15 við Bólstaðarhlíð. Erindi var grenndarkynnt frá 6. mars 2019 til og með 3. apríl 2019. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 8. febrúar 2019. Gjald kr. 11.200

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


1011. fundur 2019
Bólstaðarhlíð 15, Breyting á kvisti, gluggabreyting, svalir o.fl.
Sótt er um leyfi til að stækka þakglugga á norðurhlið, breyta kvisti á suðurhlið og útbúa svalir framan við hann á rishæð fjölbýlishúss á lóð nr. 15 við Bólstaðarhlíð.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 8. febrúar 2019.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Erindi er í grenndarkynningu hjá skipulagsfulltrúa.


717. fundur 2019
Bólstaðarhlíð 15, Breyting á kvisti, gluggabreyting, svalir o.fl.
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. febrúar 2019 þar sem sótt er um leyfi til að stækka þakglugga á norðurhlið, breyta kvisti á suðurhlið og útbúa svalir framan við hann á rishæð fjölbýlishúss á lóð nr. 15 við Bólstaðarhlíð.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 8. febrúar 2019. Gjald kr. 11.200

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Bólstaðarhlíð 13, 14, 16.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 8.1. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018. Grenndarkynning hefst þegar greitt hefur verið fyrir grenndarkynningu.


1009. fundur 2019
Bólstaðarhlíð 15, Breyting á kvisti, gluggabreyting, svalir o.fl.
Sótt er um leyfi til að stækka þakglugga á norðurhlið, breyta kvisti á suðurhlið og útbúa svalir framan við hann á rishæð fjölbýlishúss á lóð nr. 15 við Bólstaðarhlíð.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 8. febrúar 2019.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.