Flókagata 16A

Verknúmer : BN055797

1020. fundur 2019
Flókagata 16A, Bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr í suðausturhorni lóðar nr. 16A við Flókagötu.
Stærðir: 36.4 ferm., 107.7 rúmm.
Erindi fylgir mæliblað 1.247.2 dags. í september 1948.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. maí 2019 fylgir erindi.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Hrefnugata 5,7 og 9. Flókagötu 16 og 18 frá 4. apríl 2019 til og með 2. maí 2019. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við fokheldi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


727. fundur 2019
Flókagata 16A, Bílskúr
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. mars 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr í suðausturhorni lóðar nr. 16A við Flókagötu. Erindi var grenndarkynnt frá 4. apríl 2019 til og með 2. maí 2019. Engar athugasemdir bárust.
Stærðir: 36.4 ferm., 107.7 rúmm. Erindi fylgir mæliblað 1.247.2 dags. í september 1948. Gjald kr. 11.200

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


721. fundur 2019
Flókagata 16A, Bílskúr
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. mars 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. mars 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr í suðausturhorni lóðar nr. 16A við Flókagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stærðir: 36.4 ferm., 107.7 rúmm. Erindi fylgir mæliblað 1.247.2 dags. í september 1948. Gjald kr. 11.200

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hrefnugata 5,7 og 9. Flókagötu 16 og 18. Lóðarhafi hafi samband við Veitur vegna lagnar á lóð.

Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.


720. fundur 2019
Flókagata 16A, Bílskúr
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. mars 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr í suðausturhorni lóðar nr. 16A við Flókagötu.
Stærðir: 36.4 ferm., 107.7 rúmm. Erindi fylgir mæliblað 1.247.2 dags. í september 1948. Gjald kr. 11.200
Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

1012. fundur 2019
Flókagata 16A, Bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr í suðausturhorni lóðar nr. 16A við Flókagötu.
Stærðir: 36.4 ferm., 107.7 rúmm.
Erindi fylgir mæliblað 1.247.2 dags. í september 1948.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu.
Vísað til uppdrátta 01, 02 dags. 5. febrúar 2019.


717. fundur 2019
Flókagata 16A, Bílskúr
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. febrúar 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr í suðausturhorni lóðar nr 16 við Flókagötu.
Erindi fylgir mæliblað 1.247.2 dags. í september 1948. Gjald kr. 11.200

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar lagfærðir uppdrættir berast.

Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.


1009. fundur 2019
Flókagata 16A, Bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr í suðausturhorni lóðar nr 16 við Flókagötu.
Erindi fylgir mæliblað 1.247.2 dags. í september 1948.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.