Borgartún 8-16A

Verknúmer : BN055784

1014. fundur 2019
Borgartún 8-16A, BK5 - breytingar bílakjallara
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN047805 þannig að nokkrar burðarsúlur og veggir hafa verið færðir, geymslur felldar niður, ný útfærsla er á bráðabirgðastigahúsi og áfangamörkum að síðasta áfanga bílakjallara, BK7, hefur verið breytt á lóð nr. 8-16A við Borgartún.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa dags. 6. febrúar 2019 áritað á uppdrátt.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1012. fundur 2019
Borgartún 8-16A, BK5 - breytingar bílakjallara
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN047805 þannig að nokkrar súlur og veggir hafa færst til, geymslur hafa verið felldar niður, ný útfærsla er á bráðabirgðastigahúsi og áfangamörkum að síðasta áfanga bílakjallara, BK7, hefur verið breytt á lóð nr. 8-16A við Borgartún.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa dags. 6. febrúar 2019.
Gjald 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits.


1008. fundur 2019
Borgartún 8-16A, BK5 - breytingar bílakjallara
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN047805 þannig að nokkrar súlur og veggir hafa færst til, geymslur hafa verið felldar niður, ný útfærsla er á bráðabirgðastigahúsi og áfangamörkum að síðasta áfanga bílakjallara, BK7, hefur verið breytt í bílakjallara á lóð nr. 8-16A við Borgartún.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa dags. 6. febrúar 2019.
Gjald 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits.