Vegamótastígur 9

Verknúmer : BN055687

1006. fundur 2019
Vegamótastígur 9, Breytingar úti og inni
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN053541 með því að taka út bílastæði í kjallara og innrétta geymslu, breyta innra skipulagi 1. hæð og á millipalli og til að breyta útliti 1. hæðar á suðurhlið hótels á lóð nr. 9 við Vegamótastíg.
Erindi fylgir samkomulag um afnot af borgarlandi fyrir bílastæði hreyfihamlaðra dags. 16. september 2016.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


1005. fundur 2019
Vegamótastígur 9, Breytingar úti og inni
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN053541 með því að taka út bílastæði í kjallara og innrétta geymslu, breyta innra skipulagi 1. hæð og á millipalli og til að breyta útliti 1. hæðar á suðurhlið hótels á lóð nr. 9 við Vegamótastíg.
Erindi fylgir samkomulag um afnot af borgarlandi fyrir bílastæði hreyfihamlaðra dags. 16. september 2016.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.