Í Úlfarsfellslandi

Verknúmer : BN055590

1003. fundur 2019
Í Úlfarsfellslandi, Breyting á BN055142
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN55142 vegna niðurfellingar á kvöð um að nýtt hús víki fyrir skipulagðri íbúðabyggð á lóð með landnúmeri 125493 í Úlfarsfellslandi.
Erindinu fylgir endurskoðuð umsögn skipulagsfulltrúa dagsett 7. desember 2018.
Gjald kr. 0

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.