Ármúli 9

Verknúmer : BN055577

1003. fundur 2019
Ármúli 9, Breytingar innan og utanhúss
Sótt er um leyfi til að innrétta geymslur og tæknirými í hluta bílastæðahúss, opna tímabundið yfir í hús nr. 10 við Suðurlandsbraut og uppfæra útlit húss á lóð nr. 9 við Ármúla.
Erindi fylgir minnisblað um orkuramma dags. 7. desember 2018 og þríhliða samkomulag um opnun yfir lóðamörk dags. 10. desember 2018.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Þinglýsa skal kvöð um tímabundna opnun á milli lóða fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1002. fundur 2018
Ármúli 9, Breytingar innan og utanhúss
Sótt er um leyfi til að innrétta geymslur og tæknirými í hluta bílastæðahúss, opna tímabundið yfir í hús nr. 10 við Suðurlandsbraut og uppfæra útlit húss á lóð nr. 9 við Ármúla.
Erindi fylgir minnisblað um orkuramma dags. 7. desember 2018 og þríhliða samkomulag um opnun yfir lóðamörk dags. 10. desember 2018.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Lagfæra skráningu.