Fiskislóð 23-25

Verknúmer : BN055570

1002. fundur 2018
Fiskislóð 23-25, Breyta fyrirkomulagi gangna milli geymslueininga áður samþ (Bn053472)
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN053472 sem felst í breytingu á fyrirkomulagi ganga milli geymslueininga og tilfærslu á flóttastiga á norðvesturgafli í húsi á lóð nr. 23-25 við Fiskislóð.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.