Kuggavogur 5

Verknúmer : BN055540

1004. fundur 2019
Kuggavogur 5, Fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054411 sem felst í breytingu á burðarvirki og brunavörnum ásamt tilfærslu á tæknirýmum í húsum á lóð nr. 5 við Kuggavog.
Erindi fylgir leiðrétt erindislýsing ódagsett.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Hafa skal samráð við tæknistjóra Veitna varðandi inntök lagna.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


1001. fundur 2018
Kuggavogur 5, Fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054411 sem felst í breytingu á burðarvirki og brunavörnum í húsum á lóð nr. 5 við Kuggavog.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.