Framnesvegur 63-65

Verknúmer : BN055538

1001. fundur 2018
Framnesvegur 63-65, klæða norðurgafl nr. 65
Sótt er um leyfi til að klæða með sléttri álklæðningu norðurgafl fjölbýlishúss á lóð nr. 65 við Framnesveg.
Fundagerð og samþykki frá fundi dags. 11. október 2018 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 3. desember 2018 fylgja erindi.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.