Suðurlandsbraut 10

Verknúmer : BN055535

1004. fundur 2019
Suðurlandsbraut 10, Nr. 10 Innanhúshönnun 2. og 3. hæð
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN050317 með því að koma fyrir milligólfi fyrir loftræsikerfi milli 2. og 3. hæðar og breyta innra skipulagi 2. og 3. hæðar í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 10 við Suðurlandsbraut.
Erindi fylgir bréf hönnuðar með skýringum dags. 27. nóvember 2018.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsing vegna lóðar sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


1003. fundur 2019
Suðurlandsbraut 10, Nr. 10 Innanhúshönnun 2. og 3. hæð
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN050317 með því að koma fyrir milligólfi fyrir loftræsikerfi milli 2. og 3. hæðar og breyta innra skipulagi 2. og 3. hæðar í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 10 við Suðurlandsbraut.
Erindi fylgir bréf hönnuðar með skýringum dags. 27. nóvember 2018.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.


1001. fundur 2018
Suðurlandsbraut 10, Nr. 10 Innanhúshönnun 2. og 3. hæð
Sótt er umleyfi til að breyta erindi BN050317 með því að koma fyrir milligólfi fyrir loftræsikerfi milli 2. og 3. hæðar og breyta innra skipulagi 2. og 3. hæðar í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 10 við Suðurlandsbraut.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.