Lautarvegur 6

Verknúmer : BN055524

1003. fundur 2019
Lautarvegur 6, Reyndarteikningar
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN052616 með því að innrétta útigeymslu yfir stigarými, breyta inngangi á 1. hæð, fjarlægja þar hringstiga og færa eldhús, breyta innra skipulagi kjallara og bæta við glugga á vesturhlið kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 6 við Lautarveg.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


1000. fundur 2018
Lautarvegur 6, Reyndarteikningar
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN052616 með því að innrétta útigeymslu yfir stigarými, breyta inngangi á 1. hæð, fjarlægja þar hringstiga og færa eldhús, breyta innra skipulagi kjallara og bæta við glugga á vesturhlið kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 6 við Lautarveg.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Lagfæra skráningu.