Grandagarður 5

Verknúmer : BN055489

1002. fundur 2018
Grandagarður 5, Breyting á áður samþykktu erindi (BN054214)
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054214 vegna lokaúttektar, gluggum á norðurhlið er breytt, hætt er við hurð á suðurhlið og eldhúsi, snyrtingum og lager breytt í veitingarstað í fl. II, teg.a, í húsi á lóð nr. 5 við Grandagarð.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


1000. fundur 2018
Grandagarður 5, Breyting á áður samþykktu erindi (BN054214)
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054214 þannig að gluggum á norðurhlið er breytt, hætt er við hurð á suðurhlið og eldhúsi, snyrtingum og lager breytt v/lokaúttektar í veitingarstað í fl. II, teg. a í húsi á lóð nr. 5 við Grandagarð.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.