Árland 10

Verknúmer : BN055487

1001. fundur 2018
Árland 10, Sótt er um að reisa 6 íbúða sambýli.
Sótt er um leyfi til að byggja, úr steinsteypueiningum og timbri að hluta, 6 íbúða sambýli ásamt stoðrýmum á lóð nr. 10 við Árland.
Stærðir:
Mhl-01 - íbúðarhús: 541,7 ferm., 1.930,6 rúmm.
Mhl-02 - útigeymsla: 12,0 ferm., 24,1 rúmm.
Samtals: 553,7 ferm., 2.063 rúmm.
Með erindinu fylgir greinagerð hönnuðar dagsett 5. desember 2018 og útreikningar á varmatapi byggingarinnar dags. 17. okt. 2018.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


1000. fundur 2018
Árland 10, Sótt er um að reisa 6 íbúða sambýli.
Sótt er um leyfi til að byggja, úr steinsteypueiningum, 6 íbúða sambýli ásamt stoðrýmum á lóð nr. 10 við Árland.
Stærðir:
Mhl-01 - íbúðarhús: 541,7 ferm., 1.930,6 rúmm.
Mhl-02 - útigeymsla: 12,0 ferm., 24,1 rúmm.
Samtals: 553,7 ferm., 2.063 rúmm.
Með erindinu fylgir bréf hönnuðar dagsett 24. okt. 2018 og útreikningar á varmatapi byggingarinnar dags. 17. okt. 2018.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.