Sundabakki 2-4

Verknúmer : BN055432

999. fundur 2018
Sundabakki 2-4, Starfsmannaðstaða - skyggni
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi í mhl. 01 þannig að stafsmannaaðstöðu verður komið fyrir á tveimur hæðum í norðvesturhluta, koma fyrir nýjum hurðum, gluggum og neyðarstiga frá nýjum millipalli og komið verður fyrir nýju skyggni meðfram norðurgafli hússins á lóð nr. 2-4 við Sundabakka.
Stækkun er: A - rými 138,3 ferm., B - rými 200,4 ferm., 1.085,0 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


997. fundur 2018
Sundabakki 2-4, Starfsmannaðstaða - skyggni
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi í mhl. 01 þannig að stafsmannaaðstöðu verður komið fyrir á tveimur hæðum í norðvesturhluta, koma fyrir nýjum hurðum, gluggum og neyðarstiga frá millipalli og komið verður fyrir nýju skyggni meðfram norðurgafli hússins á lóð nr. 2-4 við Sundabakka.
Stækkun er: XX ferm XX rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.