Skeggjagata 5

Verknúmer : BN055428

997. fundur 2018
Skeggjagata 5, Breyting - BN051775 - leiðrétt skráningartafla
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051775 sem felst í leiðréttingu á skráningartöflu í húsi á lóð nr. 5 við Skeggjagötu.
Erindi fylgir tölvupóstur frá eiganda dags. 13. nóvember 2018.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.