Skeifan 11

Verknúmer : BN055412

1003. fundur 2019
Skeifan 11, Reyndarteikningar v/lokaúttektar
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN50723 vegna lokaúttektar á húsi á lóð nr. 11 við Skeifuna.
Umsögn brunahönnuðar dags. 11. desember 2017.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


996. fundur 2018
Skeifan 11, Reyndarteikningar v/lokaúttektar
Sótt er um leyfi til að breyta áður erindi BN50723 vegna lokaúttektar á húsi á lóð nr. 11 við Skeifuna.
Umsögn brunahönnuðar dags. 11. desember 2017.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits.