Mávahlíð 20

Verknúmer : BN055410

1010. fundur 2019
Mávahlíð 20, Breyting á innra fyrirkomulagi þakhæðar sem var hækkuð var 2015 án útgáfu byggingaleyfis.
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á þakhæð, kvistum og þaksvölum, einnig er sótt um að breyta ósamþykktri íbúð í risi í samþykkta íbúð í húsi á lóð nr. 20 við Mávahlíð.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda ódagsett, greinagerð frá umsækjendum dags. 11. desember 2018 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. febrúar 2019 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2019.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Drápuhlíð 17, 19 og 21 og Mávahlíð 14, 15, 16, 17, 18, 19, 21, 22 og 24 frá 17. janúar 2019 til og með 14. febrúar 2019.
Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 7,7 ferm. 38,1 rúmm.
Gjald kr. 11.000


Samþykkt.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrðaraðilar.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.


717. fundur 2019
Mávahlíð 20, Breyting á innra fyrirkomulagi þakhæðar sem var hækkuð var 2015 án útgáfu byggingaleyfis.
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. desember 2018 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á þakhæð, kvistum og þaksvölum, einnig er sótt um að breyta ósamþykktri íbúð í risi í samþykkta íbúð í húsi á lóð nr. 20 við Mávahlíð. Erindi var grenndarkynnt frá 17. janúar 2019 til og með 14. febrúar 2019. Engar athugasemdir bárust.
Samþykki meðeigenda í húsi nr. 20 dags. 6. des. 2018 og 10.des. 2018 Greinagerð frá umsækjendum dags. 11. desember 2018. Stækkun er: 7,7 ferm. 38,1 rúmm. Gjald kr. 11.000


Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


710. fundur 2019
Mávahlíð 20, Breyting á innra fyrirkomulagi þakhæðar sem var hækkuð var 2015 án útgáfu byggingaleyfis.
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. desember 2018 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á þakhæð, kvistum og þaksvölum, einnig er sótt um að breyta ósamþykktri íbúð í risi í samþykkta íbúð í húsi á lóð nr. 20 við Mávahlíð.
Samþykki meðeigenda í húsi nr. 18 ódagsett. Greinagerð frá umsækjendum dags. 11. desember 2018. Stækkun er: 7,7 ferm. 38,1 rúmm. Gjald kr. 11.000


Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Drápuhlíð 17, 19 og 21 og Mávahlíð 14, 15, 16, 17, 18, 19, 21, 22 og 24.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016..


1002. fundur 2018
Mávahlíð 20, Breyting á innra fyrirkomulagi þakhæðar sem var hækkuð var 2015 án útgáfu byggingaleyfis.
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á þakhæð, kvistum og þaksvölum, einnig er sótt um að breyta ósamþykktri íbúð í risi í samþykkta íbúð í húsi á lóð nr. 20 við Mávahlíð.
Samþykki meðeigenda í húsi nr. 18 ódagsett. Greinagerð frá umsækjendum dags. 11. desember 2018.
Stækkun er: 7,7 ferm. 38,1 rúmm.
Gjald kr. 11.000


Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa og vísað til athugasemda.


996. fundur 2018
Mávahlíð 20, Breyting á innra fyrirkomulagi þakhæðar sem var hækkuð var 2015 án útgáfu byggingaleyfis.
Sótt er um leyfi til að hækka þakhæð, koma fyrir kvistum, þaksvölum og breyta ósamþykktri íbúð í risi í samþykkta íbúð í húsi á lóð nr. 20 við Mávahlíð.
Stækkun er: XX ferm. XX rúmm.
Gjald kr. 11.000


Frestað.
Vísað til athugasemda.