Grensásvegur 16A

Verknúmer : BN055402

1000. fundur 2018
Grensásvegur 16A, Breyting á áður samþykktu erindi BN053105
Sótt er um breytingu á erindi BN053105 þar sem hostel-rýmum er breytt í herbergi gististaðar í flokki ? - teg. a sem verður hér eftir fyrir 160 gesti, stoðrýmum, salarhæðum og útlitum er breytt og einnig starfsemi í eldhúsi í húsi á lóð nr. 16a við Grensásveg.
Breyting á stærðum stækkunar: 1.543,8 ferm., 5.229,6 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsing vegna lóðar sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


996. fundur 2018
Grensásvegur 16A, Breyting á áður samþykktu erindi BN053105
Sótt er um breytingu á erindi BN053105 þar sem hostel-rýmum er breytt í herbergi gististaðar í flokki ? - teg. a sem verður hér eftir fyrir 160 gesti, stoðrýmum, salarhæðum og útlitum er breytt og einnig starfsemi í eldhúsi í húsi á lóð nr. 16a við Grensásveg.
Breyting á stærðum stækkunar: 1.543,8 ferm., 5.229,6 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.