Laugavegur 37

Verknúmer : BN055389

1024. fundur 2019
Laugavegur 37, Flóttapallur
Sótt er um leyfi til að setja upp flóttapall með fallvörn við núverandi fellistiga í stað skyggnis sem hefur verið fjarlægt af húsi nr. 37 við Laugaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. nóvember 2018 fylgir erindi.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnun Íslands dags. 29. nóvember 2018 og dags. 3. júní 2019.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


997. fundur 2018
Laugavegur 37, Flóttapallur
Sótt er um leyfi til að setja upp flóttapall með fallvörn við núverandi fellistiga í stað skyggnis sem hefur verið fjarlægt af húsi nr. 37 við Laugaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. nóvember 2018 fylgir erindi.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.


704. fundur 2018
Laugavegur 37, Flóttapallur
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. nóvember 2018 þar sem sótt er um leyfi til að setja upp flóttapall með fallvörn við núverandi fellistiga í stað skyggnis sem hefur verið fjarlægt af húsi nr. 37 við Laugaveg.
Gjald kr. 11.000

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið en óska þarf eftir umsögn Minjastofnunnar.

996. fundur 2018
Laugavegur 37, Flóttapallur
Sótt er um leyfi til að setja upp flóttapall með fallvörn við núverandi fellistiga í stað skyggnis sem hefur verið fjarlægt af húsi nr. 37 við Laugaveg.

Gjald kr. 11.000
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.