Hringbraut Landsp.

Verknúmer : BN055354

996. fundur 2018
Hringbraut Landsp., Umferðar og tæknigöng (matshluti 43)
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN049124 sem felst í breytingum á þegar byggðum tæknigöngum milli Sjúkrahótels og K-byggingar, mhl. 44, ásamt því að stækka tengigang til suðurs, mhl. 43, við Landspítalann við Hringbraut á lóð nr. 47 við Barónsstíg.
Stækkun mhl. 43: 320,9 ferm., 1.081,3 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


995. fundur 2018
Hringbraut Landsp., Umferðar og tæknigöng (matshluti 43)
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN049124 sem felst í breytingum á þegar byggðum tæknigöngum milli Sjúkrahótels og K-byggingar, mhl. 43, ásamt því að stækka tengigang til suðurs, mhl. 44, við Landspítalann við Hringbraut á lóð nr. 47 við Barónsstíg.
Stækkun mhl. 43: x ferm., x rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.